• Pílukastfélag Hafnarfjarðar

    PFH er með eina flottustu æfinga- og félagsaðstöðu landsins í Píluklúbbnum að Reykjavíkurvegi 64 í Hafnarfirði (bakatil) en þar er vel tekið á móti öllum spilurum, hvort sem þeir eru að byrja í pílukasti eða eru lengra komnir.

Skráðu þig í PFH!

Komdu og vertu með okkur í PFH.


Allir áhugasamir píluspilarar, vanir og óvanir, geta gengið í PFH, Pílukastfélag Hafnarfjarðar. Ársgjaldið fyrir veturinn 2021-2022 verður 14.000 kr. fyrir tímabilið 2021-2022. Innifalið í gjaldinu er ársgjald til ÍPS sem gefur rétt til þátttöku í ýmsum mótum og viðburðum á vegum sambandsins. Allir PFH-meðlimir fá aðgang að Píluklúbbnum á sérkjörum og inneign að auki í spjaldaleigu. Allir meðlimir PFH eru fullgildir meðlimir félagsins og geta keppt í innanfélagsmótum PFH, bæði liðamótum og einstaklingsmótum, sem og fyrir hönd PFH eins og áður segir á vegum ÍPS eða annara félaga. Athugið að Píluklúbburinn er sjálfstætt rekin píluaðstaða og þar eru allir velkomnir, ekki þarf að vera meðlimur í PFH til að mæta, leigja spjald og kasta pílum. Sjá á Píluklúbburinn fyrir nánari upplýsingar, opnunartíma og tímabókanir. Skráningu í PFH er hægt að gera í þessu formi okkar!.

Liðamót og félagsstarf PFH.


Pílukastfélag Hafnarfjarðar, PFH, er félag sem býður upp á vettvang fyrir alla sem hafa áhuga á pílukasti til að hittast í skemmtilegum félagsskap annara píluspilara. PFH er í samstarfi við Píluklúbbinn Reykjavíkurvegi 64 um aðstöðu fyir mót og æfingar. Félagsmenn njóta sérkjara á spjaldaleigu á öðrum kvöldum sem ekki eru á vegum PFH.

Kostnaður og aðild.

Allir sem áhuga hafa geta gengið í PFH. Ársgjald PFH er 14.000 kr. út árið 2021-2022. Þeir sem eru í öðrum félögum og vilja líka vera í PFH greiða 10.000 kr. (sleppa ÍPS gjaldinu). Hér er form frá ÍPS sem hægt er að fylla út og skrá sig í PFH (við fáum póst frá ÍPS) og verðum í sambandi. Hægt er að millifæra gjaldið á reikning okkar (sjá neðst á síðunni) og þá fá meðlimir aðgang að félagssíðu PFH á Facebook (PFH skráðir meðlimir).

Liðamót.

Með því að smella hérna er hægt að lesa nánar um liðamótin og hvernig þau virka. Liðamótið er aðalfélagsstarf PFH sem er í gangi tvisvar í viku yfir veturinn en þar mynda félagsmenn sín keppnislið og keppa einn leik gegn hvort öðru á hverju keppniskvöldi.

Vanir vs. óvanir.

PFH býður öllum áhugasömum píluspilurum að vera með. Í félaginu eru iðkendur á öllum getustigum og allir finna eitthvað við sitt hæfi. Byrjendur fá leiðsögn og geta fengið lánaðar pílur til að byrja með hjá Píluklúbbnum með spjaldaleigu. Haldin eru mót flest kvöld vikunar af Píluklúbbnum sem hægt er að taka þátt í rólegheitum.

Æfingar og mót PFH.

Þriðjudags- og miðvikudagskvöld eru liðamótskvöld PFH þar sem skráðir meðlimir keppa með sínum liðum. Allir meðlimir PFH geta búið til lið og skráð sig til leiks fyrir upphaf hvers tímabils. Nánari æfingar og mót eru auglýst í FB-grúppunni okkar en önnur kvöld eru einstaklingsmót.

Barna- og unglingastarf.

PFH og Píluklúbburinn eru byrjuð að bjóða upp á æfingar fyrir börn og ungmenni. Þá er hægt að nýta frístundastyrk Hafnarfjarðarbæ til að æfa pílukast. Nánari upplýsingar fást í Píluklúbbnum en verkefnið er í umsjón Ingibjargar og Vitors.

Önnur mót

Píluklúbburinn munu halda stök mót í allan vetur í Píluklúbbnum, bæði virk kvöld og um helgar. Liðsmenn PFH eru félagar í ÍPS geta svo keppt á öllum mótum á vegum ÍPS yfir veturinn. Píluklúbburinn auglýsir í hverri viku hvað er um að vera hvert kvöld og allir geta tekið þátt. Það þarf ekki að vera meðlimur til að mæta í Píluklúbbinn og/eða taka þátt í mótum þar og þá er er einnig hægt að leigja spjöld þegar opið er fyrir einstaklinga og hópa.

Félagahópar og vinnustaðir.

Píluklúbburinn tekur á móti hópum. Frábært tækifæri fyrir skemmtikvöld hjá hópum sem vilja koma í pílukast og njóta léttra veitinga á staðnum. Píluklúbburinn er félagsaðstaða PFH en er einkarekinn Píluklúbbur fyrir alla sem vilja. Ekki þarf að vera meðlimur í PFH til að mæta á kvöldmót eða mæta til að leigja spjöld. Sjá nánar á piluklubburinn á Facebook eða hafa samband fyrir spjaldaleigu í síma: 770-4642

Saga PFH og framtíðarmarkmið.


PFH, Pílukastfélag Hafnarfjarðar, var starfrækt fyrir aldamót í nokkur ár en var svo lagt niður árið 1998. Félagið lá í dvala en PFH var síðan endurvakið vorið 2020 og voru stofnmeðlimir hins nýja félags 18 talsins. Markmið félagsins er að efla og skipuleggja pílukast í Hafnarfirði og nágrenni, ásamt því að stuðla að þróun og bættu aðgengi að íþróttinu. Einnig mun félagið vinna í uppbyggingu á pílukasti fyrir ungmenni á svæðinu. Þannig er PFH vettvangur fyrir pílukastara að hittast, æfa, keppa og hafa gaman. Í dag rúmlega ári frá nýju upphafi og stofnfundinum eru hátt í 100 manns skráðir í félagið og liðakeppni hafin með 17 liðum. Þá hafa keppendur PFH farið á einstaklingsmót og meðal annars unnið RIG 2021 í keppni kvenna.

Okkar hugsjón

Við ætlum að fjölga meðlimum í félaginu og efla pílukast sem íþrótt og veita um leið áhugasömum vettvang til að taka þátt í starfinu og skemmtilegan félagsskap um leið. Með faglegu starfi og góðri aðstöðu að vopni bjóðum við öllum að vera með í PFH.

Okkar aðferð

Pílukast er vaxandi íþróttagrein og við trúum að með góðri umgjörð og öflugu starfi sé hægt að fá fleiri til að kasta pílum, hver og einn á sínum forsendum, hvort sem það er til að leika sér, keppa innan félagsins eða keppa fyrir hönd félagsins bæði í liðakeppni og í einstaklingsmótum á opnum mótum.

Okkar verkefni

PFH ætlar að eiga keppnisfólk í fremstu röð í íslandsmótum og á sama tíma að bjóða byrjendur velkomna. Við ætlum að bjóða upp á verkefni fyrir alla og eins og hver og einn kýs innan félagsins. Þá langar okkur að bjóða upp á pílukast fyrir börn og unglinga fyrst félaga í Hafnarfirði. Okkur langar að eiga landsliðsfólk í fremstu röð á Íslandi.

Okkar markmið

Við ætlum að verða flottasta pílukastfélag landsins. Við viljum stuðla að framgangi íþróttarinnar og trúum að pílukast sé ein af mest ört stækkandi íþróttagrein landsins. Við ætlum að efla pílukast á Íslandi með góðu starfi og reka um leið flott félag en með því að gera hlutina vel og fjölga iðkendum á öllum aldri stækkar íþróttin og framförin verður meiri.

Stjórn PHF 2021-2022.


Valgeir

Valgeir Þórður

Formaður PFH

Valgeir er annar formaður PHF frá 2020 en hann hefur verið þátttakandi í félaginu frá fyrsta stofnfundi þess árið 2020.


Guðmundur

Guðmundur

Varaformaður PFH

Stökk inn sem virkur varamaður í stjórn PFH sem tók til starfa 2021 og tók svo við sem faraformaður 2022.

Viktoría Ósk

Viktoría Ósk

Gjaldkeri PFH

Meistari í fjármálum og skipulagningu á mótum og liðakeppnum og sú sem heldur utan um alla félaga PFH. Keppnismanneskja fram í fingurgóma.

Kristinn Geir

Kristinn Geir

Ritari PFH

Spilaði smá sem krakki pílu og byrjaði svo aftur eftir um 25 ára hlé eftir að hafa horft á HM í pílu í sjónvarpinu 2019. Bjó til merki PFH og sér um grafík félagsins.

Ástþór Ernir

Ástþór Ernir

Meðstjórnandi

Einn efnilegasti spilari PFH og ástríðumaður um gott pílukast og hefur eftir HM 2019 verið forfallinn áhugamaður um pílukast. Líklegur til afreka í framtíðinni.

Ásgeir

Ásgeir

Meðstjórnandi

Stökk inn sem virkur varamaður í stjórn PFH sem tók til starfa þegar félagið hafði stækkað ört veturinn 2020-2021.

Ólöf

Ólöf

Varamaður í stjórn PFH

Varamaður í stjórn PFH sem tók til starfa þegar félagið hafði stækkað ört veturinn 2020-2021.

PFH mælir með píluvörum frá kastid.is.

Ef þú ert að leita að öllu sem við kemur pílukasti, hvort sem það eru spjöld, pílur, ljós eða og aukahlutir, þá mælir PFH með vörum frá www.kastid.is. Kastid.is er til dæmis umboðsaðili Winmau og Red Dragon á Íslandi sem eru hágæða píluvörur. Kíktu á úrvalið á vefverslun KASTID.is eða kíktu við á opnunartíma í Píluklúbbnum til að skoða.

PÍLUKLÚBBURINN.

Píluklúbburinn er félagsaðstaða PFH en er einkarekinn Píluklúbbur fyrir alla sem vilja. Ekki þarf að vera meðlimur í PFH til að mæta á kvöldmót eða mæta til að leigja spjöld. Sjá nánar á piluklubburinn á Facebook eða með því að kíkja við á Reykjavíkurveg 64 (bakatil). Sími: 770-4642

  • „Ég byrjaði að æfa mig heima í bílskúrnum eftir að hafa horft á HM um jólin. Mig langaði svo að spila af meiri alvöru og reglulega gegn fleiri vönum spilurum. Þá varð til Pílukastfélag Hafnarfjarðar á sama tíma. Frábær aðstaða skemmir svo ekki heldur fyrir og að keppa reglulega er virkilega skemmtilegt. Svo verður maður bara betri og betri með æfingunni“.

    Kristinn Geir
    Kristinn Geir Nýliði í pílukasti
  • „Það er virkilega skemmtilegt að hafa félag og aðstöðu Píluklúbbsins til að hitta og spila við aðra pílukastara. Félagsskapurinn er frábær og að upplifa stemningu og með smá keppnisskapi og keppnisstressi, að þá gerir það mann vonandi að betri spilara“.

    Ásgeir
    Ásgeir PFH

Hafðu samband við okkur í PFH.


Sendi...
Skilaboðin hafa verið send til okkar í PFH.
 Takk fyrir og við verðum í bandi!

Ef þú hefur einhverjar fyrirspurn eða vilt vita hvernig þú byrjar þá getur þú sent okkur skilaboð í forminu hér til hliðar (sem fer svo beint áfram á pfh@pfh.is). Við erum líka á Facebook undir „Pílukastfélag Hafnarfjarðar“ (sjá facebook-icon líka hér fyrir neðan) og skráðir félagar eru svo í „PFH skráðir félagsmenn“ grúppunni okkar á Facebook.

Æfingaaðstaða PFH

Píluklúbburinn
Reykjavíkurvegi 64 (baka til)
220 Hafnarfjörður

Píluklúbburinn · Upplýsingar

Sími: 770-4642 (Ingibjörg)
piluklubburinn.is
Netfang: piluklubburinn@piluklubburinn.is